Sagan okkar
Happy Hydrate varð til út frá einfaldri hugmynd – okkur fannst vanta betri og hollari valkost fyrir daglega vökvun.
Við vildum búa til eitthvað sem væri ekki bara ætlað fyrir æfingar eða afreksíþróttafólk, heldur vöru sem gæti verið hluti af hversdeginum. Eitthvað sem væri einfalt að grípa í, bragðgott að drekka og gerði það auðveldara að hugsa vel um vökvunina yfir daginn.
Þess vegna þróuðum við Happy Hydrate – bragðgóða blöndu af steinefnum og söltum sem þú einfaldlega blandar út í vatn. Hvort sem það er eftir æfingu, á annasömum vinnudegi, á ferðinni eða bara þegar þú vilt gera meira úr vatninu þínu.
Markmiðið hefur frá fyrsta degi verið einfalt: að gera góða vökvun auðveldari, bragðbetri og aðgengilegri fyrir alla.
Því stundum þarf meira en bara vatn.
Vorið 2025 tókum við svo næsta skref þegar við kynntum kreatín til leiks.
Hugmyndin hafði verið lengi í umræðu og eftir fjölda fyrirspurna ákváðum við að láta hana verða að veruleika.
Úr varð bragðgóður dagskammtur af kreatíni í einni stiku – með sömu áherslu á bragð, einfaldleika, gæði og þægindi.
En við erum rétt að byrja,
fram undan eru spennandi tímar, nýjar hugmyndir og fullt af tækifærum sem við getum ekki beðið eftir að sýna ykkur.
Við hlökkum mikið til að halda áfram þessu ferðalagi með ykkur ✨





