HAPPY HYDRATE

HAPPY HYDRATE hefur þróað ákveðna formúlu hráefna með þeirri áherslu að veita heilbrigðari og skilvirkari leið til vökvajafnvægis.

Markmið okkar er að bæta frammistöðu og vellíðan fólks með háþróaðri formúlu hráefna sem hjálpar þér að binda vökva hraðar en með hefðbundinni vatnsdrykkju.

HYDRATION XPRESS

Hydration Xpress, fyrsta vörulínan frá HAPPY HYDRATE. Drykkjablanda sem er hönnuð til að hjálpa fólki að halda vökvajafnvægi á meðan það er í sínu daglega amstri og líkamsrækt. 

Formúlan okkar er samansett af hráefnum sem styðja við hraðari vökvaupptöku með það að markmiði að bæta heildarframmistöðu og vellíðan. Hráefnin eru meðal annars natríum, kalíum og magnesíum.

Drykkjarblandan okkar inniheldur einnig fimm tegundir af B-vítamíni (B2, B3, B5, B6, B12) sem veitir jafnari og aukna orkunýtingu við hreyfingu.

AFHVERJU AÐ INNBYRÐA RAFSÖLT?

Rafsölt eins og natríum, kalíum og magnesíum hjálpa til við að stjórna vökvajafnvægi líkamans. Þau hafa þau áhrif að geta dregið úr þreytu, bætt frammistöðu við líkamlega áreynslu og hjálpað fólki að ná hraðari endurheimt eftir erfiðar æfingar.

Að halda góðu vökvajafnvægi er einnig mjög mikilvægt fyrir almenna heilsu, þar sem það hjálpar til við að halda líffærum okkar virkum og getur komið í veg fyrir höfuðverk, vöðvakrampa, hægðatregðu og önnur vandamál sem skapast af vökvaskorti.